Meira um samgöngur

Ásbrú flutningar og samgöngur

Miklir möguleikar tengjast staðsetningu Ásbrúar við Keflavíkurflugvöll og tengingar við stórskipahöfnina í Helguvík. Mjög mikið er þrengt að flestum flugvöllum í Evrópu. Við Ásbrú er hinsvegar mikið svæði í kringum flugvöllinn sem hægt er að þróa fyrir flutningatengda starfsemi. Með þessu móti mætti nýta miðlæga staðsetningu á milli þriggja heimsálfa, Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hefur mikið landsvæði í kringum Keflavíkurflugvöll til þróunar á flugtengdri starfsemi. 

Flugakademía Keilis býður upp á fjölbreytt nám í flugtengdum greinum svo sem nám í einka- og atvinnuflugi, flugþjónustu og flugumferðarstjórn. Lögð er áhersla á nútímalega kennsluhætti og kennsluumhverfi og veitir staðsetning skólans við Keflavíkurflugvöll í sér einstaka aðstöðu til kennslu flugtengdra greina. Staðsetning Flugakademíunnar og gott aðgengi að ódýrum nemendaíbúðum, ásamt hátæknilegum og nýstárlegum flota kennsluflugvéla, hefur skapað skólanum sess sem góðum kosti til að stunda flugnám, hvort heldur sem er fyrir innlenda og erlenda aðila.