Árið 2008 seldi Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar stórar byggingar til fyrirtækisins Verne Global til uppbyggingar á gagnaveri.

Síðan þá hefur Verne unnið að uppbyggingu á alþjóðlegu gagnaveri sem selur þjónustu sína til stórra fyrirtækja í Bandaríkjunum og Evrópu. Verkefnið er langstærsta gagnaversverkefnið á Íslandi. Með uppbyggingu Verne þá verður til nýr kaupandi að grænni orku á Íslandi og ný atvinnutækifæri geta skapast í kjölfarið.

Haustið 2011 komu fyrsti áfangi gagnaversins með skipum frá Bretlandi. Þann 8 febrúar 2012 var gagnaverið gagnsett við hátíðlega athöfn. Með uppsetningu á gagnaveri Verne þá skapast ýmis tækifæri fyrir fyrirtæki sem nýta sér þjónustu gagnavera að staðsetja sig nálægt gagnaverinu á Ásbrú. Allar tengingar eru nú með besta móti bæði með tilliti til rafmagns og gagnatenginga. Hér má sjá myndband á ensku þar sem helstu kostir við staðsetningu á Íslandi eru taldir fram.
Efri mynd: Loftmynd af byggingum Verne Global.
Neðri mynd: Gagnaver Verne Global





