Framsækin fyrirtæki með aðsetur að Ásbrú
Verne Global
Verne Global is a wholesale data center developer based in Asbru, Iceland, and Washington, D.C. The company is a joint venture between Novator and General Catalyst Partners. Our mission is to develop data centers in optimized geographic areas that offer the best total cost of ownership (TCO) and 100% renewable power without a price premium.
» Heimasíða
Keilir - miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs
Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, var stofnaður vorið 2007. Skólinn hefur aðsetur á Ásbrú – og starfar í fjórum skólum. Hver þeirra hefur sínar áherslur í samræmi við markmið Keilis að byggja á mikilvægi alþjóðaflugvallar og umhverfisvænum auðlindum en jafnframt að nýta þá þekkingu sem er til staðar í nærumhverfinu.
» HeimasíðaÍslenska Kísilfélagið
Icelandic Silicon Corporation is an Icelandic / Danish initiative. A group of engineers from both countries have conceived, designed and obtained licence for a new silicon metal plant in Iceland. Construction of the plant will start in 2011 and the plant will be up and running in 2013.
» Heimasíða
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar eða Kadeco er þróunarfélag sérhæft í fasteignaþróun, verkefnum sem auka samkeppnishæfni fyrirtækja á Reykjanesi og verkefnum sem efla frumkvöðlamenningu á Reykjanesi. Kadeco er í eigu fjármálaráðuneytisins og hefur frá árinu 2006 leitt uppbyggingu á Ásbrú, samfélagi frumkvöðla, fræða og atvinnulífs.
» Heimasíða
Heilsuhótel Íslands
Heilsuhótel Íslands er staður fyrir gesti til að bæta líkamlega og andlega velferð. Dvöl á hótelinu veitir tækifæri til aukinnar orku og lífsstílsbreytinga. Dvölin byggir á sérstöku mataræði, fræðslu, hreyfingu, sogæða og bólgueyðandi nudd, gufu baði, ferð í Bláa lónið, hvíld og slökun.
» Heimasíða
Gagnavarslan
Gagnavarslan ehf. er óháð þekkingarfyrirtæki sem veitir ráðgjöf og heildarlausnir í stýringu upplýsinga og varðveislu. Markmið Gagnavörslunnar er að aðstoða viðskiptavini við að ná hagræðingu í rekstri með aukinni yfirsýn og skilvirkari ferlum.
» Heimasíða
Lauftækni
Lauftæki ehf. er fyrirtæki með sérhæfingu á sviði umhverfis og garðyrkju. Sérfræðiþjónusta Lauftæknis nýtist við hönnun, umsjón og skipulag umhverfis- og lóðaframkvæmda auk þess sem Lauftækni býr yfir mikilli og sérhæfðri þekkingu í uppbyggingu og viðhaldi íþrótta- og golfvalla. Lauftækni tekur virkan þátt í kennslu og rannsóknum á sínum sérsviðum.
» Heimasíða
Filma.is
Filma.is er þjónusta sem býður fólki upp á að horfa á myndefni beint á vefsíðunni, ekkert ósvipað YouTube. Filma.is er unnin í samstarfi við helstu dreifingaraðila myndefnis á Íslandi og er fullkomlega lögleg. Einnig hefur hún fengið samþykki Smáís sem eru samtök myndrétthafa á Íslandi. Filma.is er forrituð af Moon ehf.
» Heimasíða
AwareGo
AwareGO framleiðir stutt og skemmtileg öryggisvitundarmyndbönd ætluð starfsfólki stærri fyrirtækja. Skortur á öryggisvitund er mesta ógn við nútíma tölvukerfi en öryggisfræðsla er í eðli sínu ekki spennandi viðfangsefni og erfitt að fá notendur til að tileinka sér efnið. Okkar lausn blandar saman fræðslu og skemmtun á nýstárlegan máta.
» Heimasíða
SAD Cars
SAD cars was founded in 2009 with its first year of operation in 2010. We aim at providing our customers with good solid cars for Icelandic roads which we maintain well and supervise carefully so you can have the chance of a good car at the lowest possible prices.
» Heimasíða
My Car
MyCar is a car rental service dedicated to quality service and quality products. We offer new cars from Toyota that provide customers with reliability and comfort. MyCar has access to Toyota's service network. You will also have access to a 24 hour emergency service.
» Heimasíða
Valorka
Valorka efh vinnur að þróun hverfils til virkjunar hægstraums, s.s. sjávarfallaorku. Kerprófanir skiluðu góðum árangri og sjóprófanir eru í undirbúningi. Verkefnisstjóri og einkaleyfishafi er Valdimar Össurarson en samstarf er við ýmsa aðila. Tækniþróunarsjóður styrkir verkefnið.
» Heimasíða
OMR Verkfræðistofa
OMR er hönnunar- og verkfræðistofa sérhæfð í verkefnastjórn á undirbúnings-, hönnunar- og framkvæmdarstigi. Starfssvið nær bæði til nýbygginga, ásamt breytingum á eldra húsnæði. OMR hefur komið fram með nýja nálgun á framkvæmdir, með það að markmiði að endurskilgreininga og endurnýta fasteignir og byggingarefni þannig að framkvæmdin verði hagkvæm og umhverfisvæn.
» Heimasíða
Leikfangasmiðjan
Í leikfangasmiðjunni eru ýmsir dýrgripir handsmíðaðir og má þar nefna klukkur sem hafa verið mjög vinsælar. Einnig hafa ruggustólar með nafni barnsins sagað út í stólinn vakið athygli jafnt og skemmtileg púsl og dúkkuvöggur.
» Heimasíða
Myr Design
Mýr hönnunar, lista og handverksteymið eru þær systur Helga Björg og Linda Steinþórsdætur. Helga hannar og framleiðir tískuvörur úr íslensku hráefni; skartgripi, töskur, belti, hálskraga og fatnað úr ull. Linda vinnur með sparsl tækni og notar akrýl liti og gel á striga.
» Heimasíða
Alkemistinn
Alkemistinn formulates and produces certified organic skin care products from herbs, essential oils and vegetable oils. It manufactures product lines for the face and body, for men, women, and even babies. Alkemistinn also produces and sells certified organic herbal tea blends under the name Grasakver, and herbal extracts for flavouring food and drinks.
» Heimasíða
Listdansskóli Reykjanesbæjar
Listdansskóli Reykjanesbæjar, Bryn Ballett Akademían er einkarekinn ballett, nútímadans og jazzballett listdansskóli sem leggur sérstaka áherslu á að túlka dansinn sem listform, sem allir eiga hlutdeild í. Í skólanum eru samtals yfir 200 nemendur. Eigandi og stjórnandi skólans er Bryndís Einarsdóttir.
» Heimasíða
Háskólavellir
Háskólavellir ehf er fasteignaþróunarfélag stofnað í þeim tilgangi að þróa og móta framtíðarbyggð á Ásbrú í Reykjanesbæ. Alls ræður félagið yfir 1.506 íbúðum af ýmsum stærðum. Sérstök áhersla hefur verið lögð á útleigu íbúða til námsmanna í samstarfi við Keili og eru nú þegar um 700 íbúðir í notkun.
» Heimasíða
Háaleitisskóli
Háaleitisskóli á Ásbrú er rekinn sem útibú frá Njarðvíkurskóla. Skólinn starfar undir stjórn skólastjóra Njarðvíkurskóla með sömu skólanámskrá. Deildin hefur yfir að ráða 8 kennslustofum, íþróttasal til hreyfikennslu auk stjórnunarrýmis, aðstöðu sérfræðinga, fræðsluskrifstofu og skólahjúkrunarfræðings.
» Heimasíða
Virkjun
Virkjun mannauðs á Reykjanesi er til húsa í byggingu 740 á Ásbrú, Virkjun er samkomustaður fólks sem vill búa sig undir ný tækifæri í atvinnu með námi, námskeiðum eða mannbætandi tómstundum og menningarstarfsemi.
» Heimasíða
Völlur
Völlur er Hjallastefnuskóli en fyrsta meginregla er að mæta hverju barni eins og það er og viðurkenna ólíkar þarfir aldurshópa, kynja og einstaklinga sem allir hafa þarfir sem leikskólinn lagar sig að. Leikskólinn er fyrir börn á aldrinum 2ja-6 ára og er opinn frá kl. 7:00 -17:00. Einkunnarorð skólans eru:
Kærleikur, agi, jákvæðni, vinátta og virðing.
Gistihús Keflavíkur
Gistihús Keflavíkur er staðsett að Valhallarbraut 761. Við bjóðum uppá 53 herbergi, 1-6 manna, með sjónvarpi og baðherbergi. Bjóðum einnig svefnpokapláss gistingu. Fullbúið eldhús ásamt borðsal til nota fyrir gesti Gistihússins. Morgunverðarhlaðborð í boði. Geymsla á bíl ásamt akstri til og frá flugvelli innifalið í verði.
» Heimasíða
ÍAV Þjónusta
Meginstarfsemi ÍAV Þjónustu er aðstöðustjórnun (e. Facility Management) sem gengur út á að úthýst sé þeim rekstri fyrirtækisins eða stofnunarinnar sem ekki lýtur beint að þeirra kjarnastarfsemi, til sérhæfðra aðila í slíkum rekstri. Stýring og samþætting er lykilatriði í aðstöðustjórnun. Markmiðið er að fækka birgjum og hafa einn aðila er stýri aðstöðumálum.
» Heimasíða
Langbest
Langbest er veitingastaður og er með tvo staði, á Ásbrú og við Hafnargötu. Veitingastaðurinn við Keilisbraut að Ásbrú tekur 100 manns í sæti. Matseðillinn er fjölbreyttur og verðið sanngjarnt. Pizzur eru vinsælastar en einnig er töluvert úrval grillrétta þannig að allir geta fengið eitthvað við sitt hæfi.
» Heimasíða
Skissa
Skissa er hönnunar- og auglýsingastofa á Flugvallarbraut 752 í Reykjanesbæ. Hjá Skissu er lögð áhersla á vönduð og fagleg vinnubrögð, og leggur Skissa sig sérstaklega fram við að aðstoða frumkvöðla á Ásbrú við að koma sér á framfæri, s.s. með hönnun firmamerkja, auglýsinga, merkinga og fleira í þeim dúr.
» Heimasíða
Hringbraut
Hringbraut er fyrirtæki sem sérhæfir sig í sundurhlutun og sölu notaðra bílahluta fyrir verkstæði og almnenning. Lögð er áhersla á umhverfisvæna endurvinnslu, frábæra þjónustu í gæðavottuðu verkferli.
» Heimasíða




