Frumkvöðlasetrið á Ásbrú er eitt stærsta og glæsilegasta frumkvöðlasetur landsins og þjónar frumkvöðlum, sprotafyrirtækjum og fyrirtækjum sem vilja efla nýsköpun og vöruþróun.

Frumkvöðlasetrið býður bestu mögulegu aðstöðu fyrir frumkvöðla til að stíga sín fyrstu skref, þróa viðskiptahugmyndir sínar og koma sprotafyrirtækjum á legg. Innan frumkvöðlasetursins má finna skrifstofuaðstöðu, smiðjurými, kennslustofur og fundarherbergi sem frumkvöðlar geta nýtt sér.

Frumkvöðlum innan frumkvöðlasetursins býðst ýmis konar ráðgjöf um stofnun og rekstur sprotafyrirtækja frá sérfræðingum frumkvöðlasetursins og samstarfsaðila þeirra.

Ef þú hefur áhuga á að leigja aðstöðu í Eldey, eða vilt fá að vita meira um starfsemina þar, sendu fyrirspurn til dagny(hjá)heklan.is. Þú finnur setrið líka á Facebook og ef þú vilt fylgjast með starfseminni, er líka um að gera að skrá sig á póstlista setursins með því að smella hér.

Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja, Heklan, starfrækir frumkvöðlasetrið í samstarfi við Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar og fleiri aðila. Húsnæðið er í heild 3.300 fermetrar og skiptist það í kennslu- og fyrirlestrarrými, fundaraðstöðu, og skrifstofu- og smiðjuaðstöðu fyrir frumkvöðlafyrirtæki.