Eldvörp er glæsilegt skrifstofuhúsnæði á Ásbrú í Reykjanesbæ þar sem frumkvöðlar og fyrirtæki hafa aðstöðu. Eldvörp eru staðsett á Flugvallarbraut 752.

Hugmyndin á bak við Eldvörp er að á Ásbrú sé ávallt til reiðu húsnæði fyrir frumkvöðla og fyrirtæki sem stunda nýsköpun og vilja starfa að uppbyggingunni á Ásbrú. Hugmyndafræði Eldvarpa kemur frá vísindagörðum á Norðurlöndum þar sem frumkvöðlafyrirtæki hafa aðstöðu með stoðfyrirtækjum á borð við verkfræðifyrirtæki og auglýsingastofur. Samvera þessarra aðila skapar umhverfi þar sem frjóar hugmyndir skapast og finna sér farveg, og tengslanet eykst og styrkist.

Eldvörp- fyrirtækjahótel - anddyri - sameiginleg aðstaða Ásbrú

Um húsnæðið í Eldvörpum:

Nánar um húsnæðið: Innifalið í leigu:

Húsnæðið er 1.750 fermetra

Skrifstofueiningar eru á bilinu 15-60 fermetrar

Hægt er að skipta rýmum niður eða sameina eftir þörfum leigjenda

40 fermetra sameiginlegt fullbúið fundarherbergi auk tveggja smærri fundarherbergja

100 fermetra fyrirlestrarsalur með eldhúsaðstöðu

Sameiginleg kaffistofa

Sameiginleg snyrting

Ræsting  og rekstur á sameign

Rekstur hreinlætisaðstöðu

Þjófavarnarkerfi og rekstur þess

Aðgengi að sameiginlegum fundarsölum skv. gjaldskrá

Kaffi og veitingaaðstaða

Hiti og rafmagn

Sorphirða

Nettenging

Fyrirtæki í Eldvörpum:

- OMR, verkfræðistofa
- Moon ehf., hugbúnaðargerð - filma.is
- Efla, verkfræðistofa
- Íslenska kísilfélagið
- Arkitektastofa Suðurnesja
- Icelava
- Skissa, auglýsingastofa
- Lauftækni
- Atmos, hugbúnaðarþjónusta
- Þóranna K. Jónsdóttir, Markaðsráðgjöf
 

Hér má sjá skipulag í Eldvörpum og laus rými:

Ef þú hefur áhuga á að leigja aðstöðu í Eldvörpum, eða vilt fá frekari upplýsingar,  sendu fyrirspurn á fyrirspurnir(hjá)asbru.is

Fleiri myndir:

Miðrými á EldvörpumSófar í miðrými á EldvörpumStóra fundarherbergið í Eldvörpum. Skjávarpi og 10 stólarEldvörp - fyrirlestrarsalur