Stærsta Nýsköpunarsvæði Landsins

Ásbrú er einstakt nýsköpunarsamfélag þar sem frumkvöðlar, mennta- og rannsóknaraðilar vinna með atvinnulífinu að lausnum á vandamálum framtíðarinnar. Fjöldi frumkvöðlafyrirtækja er staðsettur á Ásbrú ásamt öflugum fyrirtækjum sem eru að vinna að spennandi nýsköpunarverkefnum. Á Ásbrú er boðið upp á afbragðs aðstöðu fyrir aðila sem eru að vinna að frumkvöðlaverkefnum. 

Frábær aðstaða fyrir frumkvöðla

Eldvörp, fyrirtækjahótel

Eldvörp er glæsilegt skrifstofuhúsnæði þar sem frumkvöðlafyrirtæki hafa aðstöðu með stoðfyrirtækjum á borð við verkfræði- og auglýsingastofur.
Meira um Eldvörp hér

Frumkvöðlasetrið á Ásbrú

Frumkvöðlasetrið á Ásbrú þjónustar frumkvöðla á öllum stigum, allt frá þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref, til þeirra sem komnir eru í rekstur.
Meira um Frumkvöðlasetrið hér

-->