Menntun

Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs var stofnaður vorið 2007. Skólinn hefur aðsetur á Ásbrú. Keilir byggist upp á fjórum mismunandi skólum. Skólarnir eru Háskólabrú, þar sem undirbúningsnám fyrir háskólanám fer fram, Heilsuskóli, Orku- og tækniskóli og Flugakademía. Hver þeirra hefur sínar áherslur í samræmi við markmið Keilis að byggja á mikilvægi alþjóðaflugvallar og umhverfisvænum auðlindum en jafnframt að nýta þá þekkingu sem er til staðar í nærumhverfinu. Keilir er hlutafélag, meðal eigenda eru Háskóli Íslands, rannsóknarstofnanir, orku- og fjármálafyrirtæki, sveitarfélög, almenningssamtök og verkalýðsfélög.
Heilsuskóli
Heilsuskóli Keilis leggur áherslu á að þróa og bjóða uppá framúrskarandi nám á sviði heilsu, heilbrigðis, íþrótta- og uppeldisfræða. Nú þegar er kennd við skólann ÍAK einkaþjálfun. Aðstaða nemenda til náms og þjálfunar er afar góð en kennsla fer fram í Íþróttahúsinu á Ásbrú sem er staðsett við hliðina á aðalbyggingu Keilis.
Orku- og tækniskóli
Orku- og tækniskóli Keilis býður upp á þverfaglegt nám í orkutæknifræði og mekatróník tæknifræði (e. mechatronics) í samstarfi við verkfræðideild Háskóla Íslands, verklegar æfingar og rannsóknir nemenda fara fram í fyrsta flokks tilrauna- og rannsóknaraðstöðu í orkufræðum hjá Orku- og tækniskóla Keilis. Áhersla er lögð á að mennta sjálfstæða nemendur sem búa yfir mikilli greiningarhæfni, verkþekkingu og færni til að skapa og þróa nýjar tæknilausnir. Markmiðið er að útskrifaðir nemendur skólans verði eftirsóttir starfskraftar fyrir bæði íslenskan sem og erlendan orku- og tækniiðnað. Hjá Orku- og tækniskólanum er boðið upp á frumkvöðlanám í samstarfi við verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Flugakademía
Flugakademía Keilis býður upp á fjölbreytt nám í flugtengdum greinum svo sem einka- og atvinnuflugnám, flugrekstrarnám, flugþjónustunám og nám í flugumferðarstjórn. Lögð er áhersla á nútímalega kennsluhætti og kennsluumhverfi en staðsetning skólans felur í sér einstakt tækifæri til þess að skapa frábæra aðstöðu til kennslu flugtengdra greina.
Háskólabrú
Háskólabrú Keilis er samstarfsverkefni Keilis og Háskóla Íslands. Deildin upp á aðfararnám á vegum HÍ fyrir einstaklinga sem ekki hafa lokið stúdentsprófi. Að loknu námi uppfylla nemendur almenn inntökuskilyrði flestra innlendra háskóla og telst námið almennt sambærilegt stúdentsprófi samkvæmt samningi Keilis, HÍ og Menntamálaráðuneytisins. Markmiðið með náminu er að nemendur verði vel undirbúnir undir krefjandi háskólanám bæði hérlendis og erlendis.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Keilis: www.keilir.net





