Að búa á Ásbrú

Á Ásbrú hefur risið upp einstakt námsmannasamfélag þar sem tæplega 2000 manns búa á stúdentagörðum. Ásbrú er hluti af Reykjanesbæ sem er eitt af fimm stærstu sveitarfélögum landsins með ríflega 14.000 íbúa. Uppbygging og umgjörð svæðisins miðar að því að gera Ásbrú að fjölskylduvænu svæði þar sem gott er að búa á meðan á námi stendur. 

Keilir hefur milligöngu um útleigu á íbúðunum og hægt er að sækja um íbúð hér. Boðið er uppá afar hagstætt leiguverð og allir nemar íslenskra háskóla eiga aðgang að þeim, uppfylli þeir skilyrði um námsframvindu. Innifalið í leiguverði er hiti, rafmagn, nettenging og strætisvagnar með nettengingu milli svæðisins og háskóla á höfuðborgarsvæðinu. 

Ásbrú býður uppá skemmtilegt umhverfi sem hentar bæði einstaklingum sem fjölskyldufólki. Á svæðinu er góð aðstaða til útivistar. Íbúar Ásbrúar hafa bæði aðgang að leiksvæðum fyrir börnin sem eru afar vel búin leiktækjum og opnum grillsvæðum.

Á Ásbrú er rekinn grunnskóli, Háaleitisskóli, og er grunnskóladeildin fyrir 1-7.bekk. Einnig eru starfrækir tveir leiksskólar hér í Ásbrú, annar er heilsuleikskólinn Háaleiti og hinn er hjallastefnuleikskólinn Völlur.
Þess er vert að geta að í Reykjanesbæ og þarmeð á Ásbrú er frítt í strætó fyrir alla aldurshópa og frítt er í sund fyrir alla krakka á grunnskólaaldri.

Á Ásbrú er íþróttamiðstöð sem íbúar geta nýtt sér gegn vægu gjaldi. Á Keilisbraut má finna veitinga- og kaffihúsið Langbest.

Listasmiðjan, þar sem menningar- og tómstundahópar í Reykjanesbæ hafa aðstöðu sína, er staðsett á Ásbrú, við hlið þjónustukjarnans að Keilisbraut 773.

Tvöföld Reykjanesbraut gerir allar samgöngur við höfuðborgarsvæðið auðveldar og öruggari og aðeins er um 20 mínútna akstur frá Ásbrú til Hafnarfjarðar.

Ef þú hefur áhuga á því að leigja íbúð á Ásbrú, kíktu á www.keilir.net.