Heilsuþorpið á Ásbrú

Heilsuþorpið á Ásbrú samanstendur af fyrirtækjum og stofnunum sem starfa við heilsu á einhvern hátt. Heilsuþorpið er frábærlega staðsett við hliðina á alþjóðaflugvelli og býður heilsutengdum fyrirtækjum upp á fjölbreytt húsnæði til afnota. Heilsufrumkvöðlar geta einnig fengið aðstöðu í frumkvöðlasetrinu á Ásbrú.

Innan heilsuþorpsins má þegar finna heilsuskóla, listdansskóla, lífræna snyrtivöruframleiðslu og heilsuhótel

Íþróttamiðstöðin á Ásbrú er í dag notað af íbúum auk þess sem heilsuskóli Keilis notar það til kennslu.

Mynd: Framtíðarsýn fyrir heilsuþorpið á Ásbrú.

Það er stefna Kadeco að fasteignir innan heilsuþorpsins verði einungis leigðar til aðila í heilsutengdri starfsemi. Áhugasamir aðilar um uppbygginguna eru hvattir til þess að hafa samband.