Meira um fréttir

08 feb. 2012

Gagnaver Verne Global opnar í dag

 

Það eru nú liðin tæp fjögur ár síðan fyrirtækið Verne Global keypti stórar byggingar af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar. Síðan þá hefur verið markvisst unnið að uppbyggingu á alþjóðlegu gagnaveri sem selur þjónustu sína til stórra fyrirtækja í Bandaríkjunum og Evrópu.

Áform Verne ganga út á markvissa stækkun og að árið 2017 verði gagnaverið fullbúið í fjórum byggingum. Þegar rekstur verður kominn á fullan skrið er reiknað með að 100 störf skapist hjá fyrirtækinu.

Með tilkomu gagnaversins skapast jafnframt ýmis tækifæri fyrir fyrirtæki sem nýta sér þjónustu gagnavera að staðsetja sig nálægt gagnaverinu á Ásbrú. Allar tengingar eru með besta móti bæði með tilliti til rafmagns og gagnatenginga.

Fyrsti viðskiptavinur Verne Global er bandaríska fyrirtækið Datapipe en það sérhæfir sig í umhverfisvænum lausnum í upplýsingatækni. Umhverfisstofnun Bandaríkjanna hefur veitt fyrirtækinu viðurkenningu vegna umhverfisstefnu þess og forstjóri Datapipe, Robb Allen, segir að Verne gefi fyrirtækinu kost á því að halda áfram forystu í umhverfismálum.

Tilkoma alþjóðlegs gagnaversiðnaðar á Íslandi er í fullu samræmi við hina nýju heildstæðu orkustefnu sem unnið hefur verið að undanfarin ár og var nýlega lögð fram til kynningar á Alþingi. Einnig fellur slíkur iðnaður vel að þeirri stefnumótun sem unnið er að varðandi beina erlenda fjárfestingu á Íslandi. Íslensk stjórnvöld hafa á undanförnum árum unnið markvisst að því að kynna Ísland sem áhugaverðan kost fyrir alþjóðleg gagnaver og er nú ánægjulegt að sjá fyrsta alþjóðlega gagnaverið taka formlega til starfa.

Nánar um gagnaverið á heimasíðu Ásbrúar.

Heimasíða Verne Global.

« Back | « Prev | Next »