Meira um fréttir

09 feb. 2012

Alþjóðlegt gagnaver tekur til starfa á Ásbrú

 

Snemma árs 2008 seldi Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar stórar byggingar til fyrirtækisins Verne Global. Frá þeirri stundu hefur Verne unnið markvisst að uppbyggingu á alþjóðlegu gagnaveri á Ásbrú sem selur þjónustu sína til stórra fyrirtækja í Bandaríkjunum og Evrópu.

Verkefnið er langstærsta gagnaversverkefnið á Íslandi. Með uppbyggingu Verne þá verður til nýr kaupandi að grænni orku á Íslandi og er upphafið að nýjum iðnaði hér á landi. Með uppsetningu á gagnaveri Verne þá skapast ýmis tækifæri fyrir fyrirtæki sem nýta sér þjónustu gagnavera að staðsetja sig nálægt gagnaverinu á Ásbrú. Allar tengingar eru nú með besta móti bæði með tilliti til rafmagns og gagnatenginga.

Haustið 2011 komu fyrstu áfangar gagnaversins til landsins með skipum frá Bretlandi og var skipað upp í Helguvík. Þessar einingar koma frá Breska fyrirtækinu Colt Technologies. Fyrsti viðskiptavinur Verne er bandaríska fyrirtækið Datapipe sem er bæði með starfsemi í Bandaríkjunum og Bretlandi. Datapipe kemur frá New Jersey og þjónustar stór fyrirtæki í fjármála- og lyfjageiranum, og er með meira en 1500 viðskiptavini í sex gagnaverum í Bandaríkjunum, Bretlandi og Kína. Umhverfisstofnun Bandaríkjanna hefur veitt fyrirtækinu viðurkenningu vegna umhverfisstefnu þess. Forstjóri Datapipe, Robb Allen, segir að Verne gefi fyrirtækinu kost á því að halda áfram forystu í umhverfismálum.

Áform Verne ganga út á markvissa stækkun og að árið 2017 verði gagnaverið fullbúið í fjórum byggingum. Þegar rekstur verður kominn á fullan skrið er reiknað með að 100 störf verði innan gagnaversins. Þar til viðbótar er gert ráð fyrir um 100 stöðugildum við áframhaldandi uppbyggingu á Gagnaverinu á næstu sjö árum. Samkvæmt úttekt KPMG á umfangi uppbyggingarinnar þá má því búast við að um 158 störf skapist til viðbótar við þau 100 sem munu verða í gagnaverinu sjálfu, og um 171 störf til viðbótar við þau 100 sem munu verða við uppbyggingu þess. Sköpuð störf geta verið m.a. ýmis þjónustustörf, vörustjórnun og gagnavinnsla. Heildar óbein atvinnusköpun gæti þannig numið allt að 330 stöðugildum.

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar sér fyrir sér að gagnaver Verne Global muni hafa í för með sér komu fleiri gagnavera að Ásbrú. Þróunarfélagið hefur á undanförnum árum tekið á móti stórum alþjóðlegum fyrirtækjum á sviði upplýsingatækni sem hafa skoðað aðstæður á Ásbrú fyrir gagnaver. Þessir aðilar voru ekki tilbúnir að opna fyrstir gagnaver en nú hefur Ásbrú nú sannað sig sem góðan stað fyrir gagnaversiðnaðinn og er því mjög álitlegur kostur fyrir önnur gagnaversfyrirtæki þar sem búið er að vinna alla undirbúningsvinnu og meta alla áhættuþætti á Ásbrú. 

« Back | « Prev | Next »