Grænásbraut 501

Grænásbraut
Grænásbraut
Grænásbraut
Grænásbraut
Grænásbraut
Grænásbraut
Grænásbraut
Grænásbraut

Lýsing

Atlantic Studios í byggingu 501 er fjölnota sýningarými sem hentar undir ýmis konar viðburði og verkefni. Húsið hentar sérlega vel undir kvikmyndatökur þar sem lofthæð er góð og veggir og loft svart sem býður upp á algert ljósleysi. Húsið mætti einnig nýta undir tónleika, sýningar og fyrirtækjaviðburði.

Húsnæðið var upphaflega fyrsta stóra flugskýli hersins, skömmu eftir að flugvöllurinn var byggður um og eftir 1950. Húsnæðið hýsti síðar viðhaldsþjónustu fyrir bíla og tæki hersins.

Byggingin er um 5000m² og skiptist í kvikmyndastúdíó sem er 2200m², en hinir 2800m² skiptast í skrifstofurými á tveimur hæðum, hreinlætisaðstöðu, lager og geymslur (eftir er að fullklára skrifstofuálmuna). Utan við bygginguna er 7000m² steypt afgirt plan sem rekstraraðilar áætla til notkunar fyrir uppbyggingu á kvikmyndasviðum utandyra.

Nánari upplýsingar

Kort


Stærðir og rými

Stærð:5000 m²
Byggt:0
Tegund:Atlantic Studios fjölnota sýningarými