Seljubraut 700
Lýsing
Andrews leikhúsið. Fyrrum kvikmyndasýningarsalur hjá Nató. Húsið heitir Andrews í höfuðið á Frank M. Andrews, herforingja sem fórst í flugslysi á Fagradalsfjalli í seinni heimsstyrjöldinni.
Byggingin var endurnýjuð árið 2010. Í dag er húsið notað undir stærri viðburði svo sem útskriftir hjá Keili, danssýningar hjá Bryn Ballett akademíunni og tónleika Frostrósa í Reykjanesbæ. Árið 2010 var haldin stór ráðstefna um áhrif Eyjafjallajökuls á alþjóðaflug í Andrews.
Gengið er inn í stórt andyri með miðasölubás og sjoppu. Steingólf í anddyrinu og stórir gluggar með flottu útsýni til austurs yfir Reykjanesskagann. Góð salernisaðstaða. Salurinn tekur 499 manns í sæti. Sviðið er 100 fermetrar. Myndvarpi, tjald og hljóðkerfi er til staðar fyrir fyrirlestra.
Hægt er að leigja húsið undir staka viðburði. Til þess að leigja húsið: Sendið fyrirspurn á fyrirspurnir@asbru.is
Nánari upplýsingar
Kort
Stærðir og rými
| Stærð: | 922 m² |
| Byggt: | 1959 |
| Tegund: | Andrews leikhús |
















