Flugvallarbraut 701

Flugvallarbraut
Flugvallarbraut
Flugvallarbraut
Flugvallarbraut
Flugvallarbraut
Flugvallarbraut
Flugvallarbraut

Lýsing

Stórglæsileg fjölnota íþróttamiðstöð er rekið á Ásbrú í Reykjanesbæ. Miðstöðin er einstök í sinni röð er fjölbreytni og möguleika varðar. Húsið er í fullum rekstri og sækir fjöldi fólks ýmsa þjónustu þangað á hverjum degi. Byggingin skiptist upp í Móttaka, skrifstofu umsjónarmanns, íþróttasal, lyftingasal, upphitunarsal, speglasal, sundlaug (ekki í notkun), skvasssali, búningsherbergi og sturtur og eru saunaklefar við báða sturtuklefana. Hægt er að leigja íþróttahúsið í tengslum við fundi og viðburði á Ásbrú. Nánari lýsing á rýmum er hér fyrir neðan:

Aðalsalurinn: Stór glæsilegur salur þar sem hægt er að spila handbolta, fótbolta, körfubolta, blak, badminton, boccia ofl. Salurinn er líka kjörinn til námskeiðahalds og fjölmennari fundarhalda. Hægt er að skipta salnum í tvennt þannig að fleiri en einn hópur geti notað salinn í einu.

Skvasssalir: Í húsinu eru tveir löglegir veggtennissalir sem nýlega voru teknir í gegn. Vinsældir veggtennis eða skvass hafa aukist gríðarlega bæði hér á Íslandi og erlendis undanfarin ár, bæði vegna þess hversu skemmtilegt það er, en líka hversu góð hreyfing skvass er fyrir alla vöðva líkamans. Auk þess eru tveir aðrir salir í sömu stærð sem hægt er að nota undir eróbik, jóga, körfubolta, karate ofl.

Lyftingasalur: Vel búinn lyftingarsalur er í húsinu.Tækin er í góðu ásigkomulagi og henta öllum vel sem vilja styrkja á sér kroppinn og vera í góðu líkamlegu formi. Hægt er að fá kennslu á tækin og prógram til að lyfta eftir.

Upphitunarsalur: Rúmgóður salur með hlaupabrettum, hjólum, stigvélum, dýnum og boltum til að gera maga og teygjuæfingar auk sippubanda til upphitunar fyrir æfingu eða til að slaka á og teygja eftir æfingu. Salurinn er í dag notaður undir bardagaíþróttir.

Danssalur: Stórskemmtilegur parketlagður salur með góðri lýsingu og speglum er á efri hæð hússins þar sem hægt er að stunda allt milli himins og jarðar en myndi henta sérstaklega vel í yoga, eróbik, dans, bardagaíþróttir eða annað þess háttar. Taekwondo félag Reykjanesbæjar æfir í salnum.

 

Nánari upplýsingar

Kort

Stærðir og rými

Stærð:4077 m²
Byggt:1960
Tegund:Íþróttahús