Um Ásbrú

Á undanförnum árum hefur byggst upp einstakt samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs í Reykjanesbæ, þar sem Nató hafði áður aðstöðu á Íslandi. Grundvöllur þessarar einstöku endursköpunar er menntafyrirtækið Keilir, sem hefur náð gríðarlegum árangri og hefur í dag um 600 nemendur. Á Ásbrú eru háskólagarðar þar sem fólk í háskólanámi getur leigt rúmgóðar íbúðir og búa tæplega 1.800 manns í háskólagörðunum. Fjöldi fyrirtækja hefur numið land og kennir sig við Ásbrú í dag. Eru það bæði rótgróðin fyrirtæki og snörp frumkvöðlafyrirtæki. Á meðal stærstu nýsköpunarverkefna á Íslandi eru tvö fyrirhuguð á Ásbrú. Það er alþjóðlegt gagnaver Verne Global annars vegar og hinsvegar Lava Clinic sem er heilsustofnun sérhæfð í virðismikilli heilsuferðamennsku. Uppbyggingin á Ásbrú er ennþá ung og enn fjöldi tækifæra til staðar fyrir nýja aðila að hasla sér völl.

Saga Ásbrúar

Þegar bandaríski herinn yfirgaf varnarsvæði sitt eftir 60 ára veru þá var sérstakt félag, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf., eða Kadeco, stofnað til að koma varnarsvæðinu í borgaraleg not og er það í eigu forsætisráðuneytisins. 

Markmið og tilgangur Kadeco er að leiða þróun og umbreytingu á fyrrum varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli til borgaralegra nota. Í því felst meðal annars nauðsynleg undirbúningsvinna, svo sem úttekt á svæði og mannvirkjum ásamt þróunar- og vaxtarmöguleikum þess í samráði við þá aðila sem hafa hagsmuna að gæta. Þá annast félagið, á grundvelli þjónustusamnings við ríkið, rekstur, umsjón og umsýslu tiltekinna eigna íslenska ríkisins á svæðinu, þar með talið umsjón með sölu og útleigu eigna, hreinsun svæða, niðurrif mannvirkja og önnur skyld verkefni. Félagið vinnur einnig verkefni sem tengjast úttektum, þróun og umbreytingu á svæðinu.

Eftir brottför bandaríkjahers hóf fólk að nota mörg mismunandi nöfn til þess að lýsa svæðinu, þar á meðal Gamla varnarsvæðið, Völlurinn, Keilissvæðið og Miðnesheiði. Nafnið Ásbrú var valið eftir ítarlega rýnivinnu fjölmargra hagsmunaaðila á Reykjanesi. Nafnið hjálpar aðilum á svæðinu að hafa skýrt auðkenni til að kenna sig við og er ætlað að vera samheiti yfir þá jákvæðu uppbyggingu sem á sér hér stað.

Uppruni nafnsins

Ásbrú er brúin sem goðin byggðu milli Miðgarðs og Ásgarðs og sést frá jörðu sem regnbogi. Annar endi Ásbrúar er á himni, hjá Himinbjörgum þar sem Heimdallur býr.

Ásbrú er mjög sterklega byggð, hún mun þó brotna í Ragnarrökum þegar Múspellssynir ganga yfir hana. Samkvæmt norrænni goðafræðinni þá er rauði liturinn í regnboganum (Ásbrú) eldur sem brennur á himni. Eldurinn varnar því að hrímþursar og bergrisar gangi upp brúna.

Á hverjum degi ríða æsir eftir Ásbrú til urðarbrunns þar sem er dómsstaður goðanna. Urðarbrunnur stendur undir rót Asks Yggdrasils. Við Urðarbrunn eru nornirnar Urður, Verðandi og Skuld. Þór getur hins vegar ekki farið eftir Ásbrú til að komast á dómsstað. Hann þarf að vaða miklar ár til að komast á leiðarenda.

Í Gylfaginningu segir um þetta:

21. Körmt ok Örmt
ok Kerlaugar tvær,
þær skal Þórr vaða
hvern dag
er hann dœma ferr
at aski Yggdrasils,
þvíat Ásbrú
brennr öll loga,
en heilug vötn flóa.